Hetjusögur/mannasögur

Ég þekki fullt af feðrum sem segjast aðeins geta verið með börnin sín aðra hvora helgi eða jafnvel minna vegna vinnunnar sem þeir vinna. Ég hef aldrei heyrt móður segja slíkt hið sama. Það sem ég heyri þær segja er að þær geti ekki tekið vinnum með löngum vöktum eða helgarvinnu (og þar af leiðandi hærri laun) því jú, hver á að hugsa um börnin á meðan? Einstæðir foreldrar eru þvi flokkaðir þegar kemur að þessum málum. Við höfum öll heyrt um einstæða feður sem eru bara alveg með börnin sín og okkur þykja þeir svo duglegir. Þeir eru hetjur sem birtast í sögunni þegar allt ætlar fjandans til og redda málunum. Þeir færa fórnir fyrir börnin sín, fá jafnvel að minnka eða sveigja vinnutímann sinn til þess að geta sinnt þessum greyjum og afar og ömmur og frænkur og frændar sem allir héldu að væru dauð spretta fram og vilj aðstoða þennan duglega mann. Ömmurnar hugsa "auðvitað getur hann Siggi minn ekki hætt í ræktinni  OG briddseklúbbnum bara því hann á börn". og öll fjölskyldan fer í það að skipuleggja hvernig best verður að því staðið að aðstoða Sigga litla svo líf hans þurfi ekki að umturnast.

 Hinu megin við ganginn býr hún Sigga. Hún á 3 börn en fær sem betur fer pabbahelgar (eitthvað sem ekki allar mæður, né feður, hvað þá börn, fá). 4 dagar í mánuði bara fyrir hana. Sigga býr í 2. herbergja íbúð með 3 börnunum sínum því hún heur ekki efni á meiru. Hún og hennar fyrrverandi ætluðu alltaf að vera saman svo hún var í HÍ þegara þau hættu saman. Hann fékk vinnu og getur þar af leiðandi ekki verið með börnin 3 nema aðra hvora helgi. Engum finnst Sigga dugleg. Svona er þetta bara og í rauninni hefði hún átt að vera búin að hugsa fyrir þessu.  Engar ömmur og afar eða frænkur eða frændur poppa allt í einu upp í Siggu lífi til þess að gera hlutina auðveldari. Eini tíminn sem Sigga á fyrir sjálfa sig er þegar börnin eru sofnuð og hún getur hugsað hálfa hugsun yfir uppvaskinu. Sigga er ekki dugleg, hún er ekki hetja, hún er bara móðir... 


Athugasemdir

1 identicon

Guð almáttugur, eins og talað út úr mínu munni!

Fer svo fáránlega í mig.

Linda Sæberg (IP-tala skráð) 30.5.2013 kl. 16:43

2 identicon

Hún er ekki hetja, hún er bara móðir. Gott niðurlag.

Arna Björk (IP-tala skráð) 30.5.2013 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband